Samantekt um þingmál

Atvinnuréttindi útlendinga

645. mál á 153. löggjafarþingi.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Markmið

Að tryggja markvissari afgreiðslu umsókna um atvinnuleyfi vegna starfa sem krefjast sérhæfðrar þekkingar þeirra sem þeim gegna sem felur þó ekki í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ráðherra fái heimild til að birta í reglugerð lista yfir þau störf sem krefjast sérhæfðrar þekkingar þar sem tímabundinn skortur er á starfsfólki. Skal ráðherra óska eftir tillögum að breytingum á framangreindri reglugerð frá hlutaðeigandi stofnunum og hagsmunaaðilum a.m.k. á tólf mánaða fresti. Þá er lagt til að Vinnumálastofnun fái heimild til þess að veita tímabundin atvinnuleyfi á grundvelli þeirra breytinga sem lagðar eru til og að heimilt verði að framlengja atvinnuleyfi sem veitt eru á grundvelli nýs lagaákvæðis um allt að tvö ár, þrátt fyrir að það starf sem um ræðir hafi verið fellt brott af lista yfir störf í framangreindri reglugerð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 29.08.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.